Í dag er ég komin 37 vikur...já ekki nema 3 vikur eftir


í gær var ég með einhverja verki sem stóðu yfir í ca. 2-3 tíma eða svo, nú er aldrei að vita hvenær sú stutta ætlar að láta sjá sig þar sem ég er byrjuð að fá einhverja verki- hummmm, er heldur ekkert á móti því þar sem ég er orðin ansi þreytt meika rétt svo 3 tíma í vinnunni og þá alveg búin á því- orkan farin......
var í mæðraskoðun á mánudaginn (3.mars) og ljósan vildi bara helst að ég mundi hætta að vinna

en ég HÖRKUTÓLIÐ sagðist bara að ég ætlaði að reyna að klára þessa vinnu viku og sjá svo til. Nú þarf maður víst að fara að taka sér lúra og hvílast og safna orku- svo ég verði ekki bara dauð þreytt og hafa enga orku í fæðingarferlinu ÚFFFFFFF það vil ég ekki. en ég er að hugsa málið hvað ég á að gera, vinna næstu viku eða bara segja þetta bara gott og taka því bara rólega og vera bara að dunda mér og hvíla mig, fara í jóga og meðgöngusund...hummmmmm þetta er nú ekki erfið spurnig né ákvörðun þannig séð.
jæja í morgun vaknaði ég svo með verki líka. HUMMMMMMMMM ég vona svo að þetta sé bara að fara að byrja og klárast

get nú ekki beðið eftir að allt sé búið og búin að fá litla gullmolann minn í heiminn

Nú er bara að bíða og sjá til hvað gerist og hvað hún ætlar að gera BÍÐUM SPENNT
svo skil ég ekki alveg ég vakana mjög oft með honum Hilmari þegar hann fer í vinnuna og virðist ekki geta sofnað aftur þótt mig langi það svo- reyni að skríða uppí aftur en þá ligg ég bara þarna og get ekki sofnað/sofið meira, hvað á það nú eiginlega að þýða

er dauðþreytt en samt..... hvað er málið. svo er ég orðin dauðþreytt um hádegi og/eða eftir hádegi, en kemst nú yfir það en væri svo alveg til í að leggja mig

svo í kvöld er svona GIRLY kvöld


hjá okkur Lovísu og Írisi, ætlum í bíó en ekki er enn alveg ákveðið á hvaða mynd en það kemur bara í ljós
maður verður að ná að gera eitthvað svona áður en maður fer upp á fæðingardeild og svona- ekki það að ég sé að fara AKKÚRAT núna þannig að maður verður að gera eitthvað fyrir sig líka

.......................
sigrún Ýr og Kolla bættust við í hópinn, bara gaman = 2 óléttar og 3 mömmur
(þettar er hinn svo kallaði mömmuklúbbur hjá okkur)
við ákvöððum svo að fara á 27 dresses- bara nokkuð góð stelpumynd verð ég nú að viðurkenna, svo var náttúrlega tjattað mikið eftir myndina- bara þetta sem fylgir okkur stelpunum.